Fjör í óvissuferð hjá 5. og 6. flokk karla

29. nóv 2011

| umsjon

Fjör í óvissuferð hjá 5. og 6. flokk karla

5. og 6. flokkur karla fóru í óvissuferð síðastliðinn fimmtudag.  Farið var frá íþróttamiðstöðinni með Ægisrútunni og var aðeins þjálfarinn sem vissi hvert förinni var heitið.  Áfangastaðurinn var Keiluhöllin í Öskjuhlíð en þar fóru strákarnir í keilu og skemmtu sér konunglega.  Eftir keiluna var svo pizza og gos fyrir alla.
Ferðin var mjög skemmtileg og voru strákarnir til fyrirmyndar.  Sumir voru að spila keilu í fyrsta skipti en það mátti oft sjá glæsileg tilþrif á keilubrautinni.


Image URL: /upload/images/Ýmislegt/DSC-0000018_thumb.jpg