Leikir hjá 3. og 4. flokk karla um helgina

13. nóv 2011

| umsjon

Leikir hjá 3. og 4. flokk karla um helgina

Það er nóg að gera hjá sameiginlegu liði Selfoss/Ægi í 3. og 4. flokk karla á Faxaflóamótinu.
A og B lið 4. flokks léku í gær gegn Gróttu.  A liðið tapaði 1:0 en var síst slakara liðið.  B liðið vann hins vegar stórsigur 0:9.
A og B lið 3. flokks eiga síðan að spila við Breiðablik í dag og fara leikirnir fram í Fagralundi (Kópavogi).  A liðið hefur leik kl. 15:00 og B liðið kl. 16:30.