Lokahóf yngri flokka Ægis fór fram á miðvikudaginn. Dagskrá var með hefðbundnu sniði, veittar voru viðurkenningar og síðan fengu allir pizzu, franskar og gos :-). Rúmlega 80 krakkar mættu á hófið og var mikið líf og fjör eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Síðastliðið tímabil var viðburðaríkt og skemmtilegt en rúmlega 90 krakkar æfðu hjá félaginu. Nýtt tímabil hefst í næstu viku og voandi verður það jafn ánægjulegt og það síðasta.
Image URL: /upload/images/Lokahóf yngri flokka 2011/IMG_3023_thumb.jpg
Image URL: Lokahóf yngri flokka 2011