Oldboys léku gegn Létti í gærkvöldi á útivelli. Strákarnir byrjuðu leikinn vel og komust yfir en eitthvað dapraðist leikurinn í kjölfarið því næstu 3 mörk skoruðu Léttismenn. Ægismenn tóku sig þá saman í andlitinu og náðu að jafna muninn 3:3 og lítið eftir af leiknum. En í blá lokin náðu heimamenn að pota inn einu grísamarki og niðurstaðan 4:3 tap.
Það voru Markús, Reynir og Gústi sem skoruðu mörk Ægis.
Naumt tap hjá Oldboys
1. sep 2011
| umsjon