Dramatískar lokamínútur á Þorlákshafnarvelli í kvöld

5. ágú 2011

| umsjon

Dramatískar lokamínútur á Þorlákshafnarvelli í kvöld

Meistaraflokkur karla tók á móti Ými á Íslandsmótinu í kvöld.  Fyrir leikinn voru gestirnir fyrir ofan Ægi og gátum við með sigri komist upp fyrir þá og í þriðja sæti.

Ægismenn réðu gangi leiksins í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér hættuleg færi.  Nokkur hálffæri litu dagsins ljós en inn vildi boltinn ekki.  Ýmismenn náðu að komast yfir á 32. mín. þvert gegn gangi leiksin.  Rétt fyrir hálfleik fékk Eyþór sannkallað dauðafæri en skaut í hliðarnetið.
Í síðari hálfleik héldu okkar menn áfram að stjórna leiknum en náðu ekki að reka endahnútinn á sóknirnar.  það voru hins vegar gestirnir sem bættu við marki á 81. mín. og útlitið orðið heldur dökkt.  En strákarnir brotnuðu ekki við mótlætið og sóttu af krafti síðustu mínúturnar.  Á 85. mín. uppskáru þeir laun erfiðisins þegar Alli þjálfari skoraði laglegt skallamark.  Sók Ægismanna hélt áfram að þyngjast og Aco jafnaði síðan leikinn á 89. mín. Það sem eftir lifði leiks sóttu okkar menn stíft að marki gestanna og voru nálægt því að landa sigri er Eyþór skaut rétt framhjá.  En leiknum lauk með jafntefli 2:2 eftir dramatískar lokamínútur.