Í kvöld leikur meistaraflokkur karla gegn KH og fer leikurinn fram að Hlíðarenda. Þetta er svo sannarlega mikilvægur leikur því okkar menn eru í 6. sæti með 16 stig en komast með sigri í 19 stig uppað hlið liðanna í öðru sæti. Spennan er mikil í kvöld því einnig eigast við Ýmir – KV og KFR – Léttir. Þetta eru liðin fyrir ofan okkur í riðlinum og því gæti orðið mikil breyting á stöðu liðanna eftir þessa leiki. Nú er bara að skella sér í höfuðborgina og styðja okkar menn.
Áfram Ægir
Enn einn mikilvægur leikur hjá meistaraflokk karla í kvöld
27. júl 2011
| umsjon