4. flokkur karla eru á leið á Rey Cup en það er alþjóðlegt knattspyrnumót sem þróttur Reykjavík heldur. Mótið hefst í dag með setningu og liðin koma sér fyrir í gistinu. Á morgun byrjar svo fótboltinn er og spilað alveg fram á sunnudag þegar úrslitaleikir eru leiknir.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru krakkarnir hressir og kátir þegar fréttaritari Ægis kíkti á æfingu hjá þeim enda spennan mikil fyrir mótinu. Svo óskum við bara liðinu góðs gengis á Rey Cup og segjum áfram Ægir.
Image URL: /upload/images/4. flokkur karla 2011/CIMG2079 (800×600)_thumb.jpg