Meistaraflokkur karla vann í kvöld mjög mikilvægan sigur gegn KFR á Hvolsvelli. Allt útlit var fyrir markalaust jafntefli en á 80. mín. náði Milan að skora skallamark sem var sigurmark leiksins. Í fyrri hálfleik náði Hlynur að verja víti sem var sannarlega mikilvægt í kvöld.
Eftir þennan sigur eru okkar menn komnir með 16 stig og þar með upp að hlið KFR sem voru efstir fyrir þennan leik. Næsti leikur meistaraflokks er gegn KV á heimavelli og fer hann fram föstudaginn 22. júlí.
Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/lidsmynd_thumb.jpg