Pollamót KSÍ í Þorlákshöfn á morgun

6. júl 2011

| umsjon

Pollamót KSÍ í Þorlákshöfn á morgun

H riðill pollamóts KSÍ verður leikinn hér í Þorlákshöfn á morgun.  Fyrstu leikir hefjast kl. 14:00 og er síðan spilað stanslaust til 17:30.  Liðin sem eru með okkur í riðli eru FH, ÍBV og Fjölnir.  Leikið er í A og B liða keppni og munum við vera í samstarfi við Hamar með liðin okkar.  Nú er um að gera fyrir alla að skella sér á völlinn og sjá stjörnur framtíðarinnar leika listir sínar.