Góðir sigrar hjá meistaraflokk karla og 4. flokk karla á fimmtudag

4. júl 2011

| umsjon

Góðir sigrar hjá meistaraflokk karla og 4. flokk karla á fimmtudag

Meistaraflokkur karla vann mikilvægan 1:2  útisigur gegn Hvíta Riddaranum á fimmtudag.  Það voru Sæli og Eyþór sem skoruðu mark Ægis.  Með sigrinum er liðið komið með 10 stig, aðeins 4 stigum frá toppliði Léttis og 3 stigum frá liðunum í öðru sæti.  Næsti leikur liðsins er gegn KFS á föstudagskvöldið og hefst hann kl. 19:00 á þorlákshafnarvelli.

4. flokkur karla átti einnig leik á fimmtudag.  Þá vann liðið góðan sigur á toppliði Vals 3:2.  Það voru Atli (með 2) og Halldór sem skoruðu mörk Ægis.