Helgina 18. – 19. júní tóku 6. og 7. flokkur þátt í Smábæjarleikunum á Blönduósi. Liðin stóðu sig mjög vel og var helgin skemmtileg í alla staði. Eftir mótið völdu mótshaldarar lið sem hlaut sérstök verðlaun frá styrktaraðilum mótsin vegna prúðmennsku og góðrar framkomu um helgina. Það var einróma áltit mótshaldara og starfsfólks að lið Ægis fengi þessi verðlaun. Þetta er frábær viðkenning og eiga krakkarnir þetta svo sannarlega skilið 🙂
Frábær viðurkenning fyrir prúðmennsku á Smábæjarleikunum
28. jún 2011
| umsjon