4. flokkur karla lék gegn Selfoss á útivelli í gær. Strákarnir náðu ekki að fylgja eftir góðum leik gegn ÍBV og töðuðu 5:3. Í fyrri hálfleik léku strákarnir gegn sterkum vind og var allt útlit fyrir að þeir færi í hálfleik með stöðuna 1:1. En Selfyssingar náðu að setja tvö í lok hálfleiksins og staðan því 3:1 fyrir heimamenn þegar flautað var til síðarihálfleiks.
Í síðari hálfleik sóttu okkar menn stíft en bæði lið bættu við tveimur mörkum og niðurstaðan því 5:3.
Næsti leikur 4. flokks er gegn Val á heimavelli fimmtudaginn 30. júní.
4. flokkur lá gegn Selfossi á útivelli
28. jún 2011
| umsjon