Meistaraflokkur karla lék gegn toppliði Léttis á föstudagskvöld. Ægismönnum hefur gegnið vel á heimavelli í sumar og því góður möguleiki á að leggja Léttismenn.
Gestirnir byrjuðu leikinn betur og komust yfir á 15. mín. Talsvert jafnræði var með liðunum en okkar menn þó heldur sterkari. Luc jafnaði leikinn fyrir Ægi á 25. mín. og Micheal kom liðinu yfir rétt fyrir hálfleik.
Í síðari hálfleik fengu okkar menn nokkur fín færi til að bæta við mörkum en eins og oft í sumar voru menn ekki að nýta færin sín. Léttismenn jöfnuðu leikinn um miðjan hálfleikinn og þrátt fyrir að fá fín færi til að landa sigri var jafntefli niðurstaðan fyrir okkar menn.
Næsti leikur meistaraflokks er gegn Hvíta riddaranum á útivelli næstkomandi fimmtudag.
Jafntefli við toppliðið á föstudagskvöld
26. jún 2011
| umsjon