Stórsigur hjá meistaraflokk í kvöld

10. jún 2011

| umsjon

Stórsigur hjá meistaraflokk í kvöld

Meistaraflokkur karla lék gegn liði KH (Knattspyrnufélag Hlíðarenda) í kvöld.  Fyrir leikinn voru bæði lið með einn sigur í mótinu.
Það var fljótlega ljóst að okkar menn voru sterkari aðilinn á vellinum.  En það er ekki alltaf nóg. Ægismenn fengu urmul af fínum færum til að komast yfir í leiknum en inn vildi boltinn ekki.  Þegar flautað var til hálfleiks var staðan enn 0:0.
Í síðari hálfleik héldu okkar menn uppteknum hætti án þess að skora.  Það var síðan í fyrstu sókn gestanna sem Pálmi skoraði slysalegt sjálfsmark og KH komnir yfir gegn gangi leiksins.  Ansi margir voru farnir að halda að saga síðasta leiks væri að fara endurtaka sig.  Michael og Milan koma síðan inná á 57. mín. og 63. mín og við það gjörbreyttist leikur okkar manna.  Mikill kraftur færðist í sóknina og var Milan sérstaklega ógnandi.  Fyrsta markið skoraði  Eyþór úr vít á 62. mín. og eftir það komu mörkin á færibandi.  Sæli skorar á 70. mín. og Michael á sömu mínútu.  Eyþór skorar annað mark úr víti á 72. mín. og bætir síðan þriðja marki sínu við á 76. mín.  Milan kórónar góðan leik með marki á 85. mín. og Matti skorar síðasta markið á 92. mín.  Glæsilegur 7:1 sigur því staðreynd og okkar menn komnir í 3. – 6. sæti með 6 stig.
Næsti leikur strákanna er fimmtudaginn 16. júní gegn Ými á útivelli.