Glötuð stig hjá meistaraflokk í vesturbænum

5. jún 2011

| umsjon

Glötuð stig hjá meistaraflokk í vesturbænum

Meistaraflokkur karla lék KV á föstudagskvöldið.  Okkar menn lékur gegn sterkum vindi í fyrr hálfleik en voru samt heldur sterkari aðilinn. Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta markið en það kom á 30. mín. úr föstu leikatriði.  Eyþór jafnar síðan rétt fyrir hálfleik.
Í síðari hálfleik áttu okkar menn leikinn en þrátt fyrir fjöld dauðafæra og víti ná strákarnir ekki að skora mark.  Í staðin skora KV aftur úr föstu leikatriði 10 mín. fyrir leikslok og stela sigrinum.  Grátleg niðurstaða miðað við gang leiksins.

Næsti leikur liðsins er gegn KH á heimavelli næstkomandi föstudag.