Það voru tveir æfingaleikir hjá félaginu í kvöld. 4. flokkur karla lék gegn Hamri og sigraði sannfærandi en liðið fékk ekki á sig mark og skoraði hátt á annan tuginn.
Meistaraflokkur karla lék gegn 1. deildar liði HK sem mætti með sitt sterkasta lið. Leiknum lauk með 1:4 sigri gestanna en það var Milan sem skoraði fyrir Ægi á 39. mínútu.
Tap hjá meistaraflokk og öruggur sigur hjá 4. flokk
5. maí 2011
| umsjon