Meistaraflokkur lék í dag á Þorlákshafnarvelli gegn KV í Valitor-bikarnum. Leikurinn fór fram við góðar aðstæður og völlurinn okkar er í fínu standi.
Leikurinn fór fjörlega af stað og voru okkar menn heldur sterkari. Luc skoraði fyrsta markið á 15. mín eftir stungusendingu frá Lalla. Mínútu síðar skoruðu okkar menn síðan sjálfsmark og staðan orðin 1:1. Luc er síðan aftur á ferðinni á 40. mín. eftir fyrirgjöf og í kjölfarið fá Ægismenn nokkur góð færi til að bæta við marki og verja KV m.a. á línu. En alveg gegn gangi leiksins jafna gestirnir rétt fyrir hálfleik og staðan því 2:2 þegar síðari hálfleikur hefst.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks en KV komast yfir með marki úr föstu leikatriði á 60. mín. Eftir það fá okkar menn nokkur góð færi til að jafna leikinn en talsvert gegn gangi hans bæta gestirnir við marki eftir skyndisókn á 77. mín. Eftir það áttu liðin ekki teljandi færi og lauk leiknum því með sigri KV 2:4 og eru okkar menn því úr leik í bikarnum.
Byrjunarlið Ægis í dag.
Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/CIMG1862_thumb.JPG