Nýir leikmenn í meistaraflokk

30. apr 2011

| umsjon

Nýir leikmenn í meistaraflokk

Meistaraflokkur karla hefur verið að styrkja sig fyrir keppnistímabilið og nokkrir nýir leikmenn gengið til liðs við félagið.  Engir hafa þó komið um eins langan veg og þeir Mahop Luc og Ekoman Vincent en þeir félagar eru ættaðir frá Kamerún.
Mahop Luc (kallaður Luc) er 24. ára og leikur sem sóknarmaður.  Hann var að spila með svissneska liðinu Morat áður en hann kom til Ægis.
Ekoman Vincent (kallaður Ghislain) er 22. ára og leikur sem miðjumaður.  Hann var einnig að spila í Sviss en með liðinu Solothurn
Félagarnir eru bara hressir með að vera komnir til Íslands.  Þeir tala báðir frönsku sem er þeirra tungumál en einnig bjarga þeir sér á ensku.  Og já……..stelpur þeir eru á lausu.

Hér eru þeir félagar, Luc til vinstri og Ghislain til hægri.


Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/CIMG1854_thumb.JPG