Sumarkaffi Ægis

29. apr 2011

| umsjon

Sumarkaffi Ægis

Á sunnudaginn verður haldið hið árlega og marg rómaða Sumarkaffi Ægis.  Að venju fer veislan fram í Versölum og hefst kl. 15:00.  Það verður notalega kaffihúsa stemming á staðnum og fullt af kræsingum sem foreldrar iðkenda hafa galdrað fram og eiga þeir skilið miklar þakkir fyrir framlagið.  Nú er tilvalið að skella sér á gott kaffihlaðborð í sumarbyrjun með fjölskyldu eða vinum.

Verði er að venju stillt í hóf en það kostar 1200 kr. fyrir 14 ára og eldri, 600 fyrir 6 til 14 ára og ókeypis fyrir yngri en 6 ára.


Image URL: /upload/images/Ýmislegt/kaka_thumb.bmp