Leikir hjá Ægi um helgina

15. apr 2011

| umsjon

Leikir hjá Ægi um helgina

Það verður nóg að gera hjá liðum Ægis á morgun.  Meistaraflokkur karla leikur æfingaleik við Stjörnuna í Kórnum og boltinn byrjar að rúlla kl. 12:00.  5. flokkur karla spilar síðan leik með 5. flokki Hamars gegn Álftanesi hér í Þorlákshöfn.  Þar er um að ræða tvo leiki sem byrja kl. 10:00 og 10:50.
Nú er bara um að gera að kíkja á gervigrasið í Þorlákshöfn eða í Kórinn Kópavogi og kíkja á smá fótbolta.