Ný þjálfari tók við meistaraflokk karla fyrir þetta tímabil. Nú styttist í að keppnistímabilið hefjist og liðið þegar byrjað að spila í Lengjubikarnum. Næsti leikur er einmitt á laugardaginn gegn Sindra kl. 14:00 á Selfossvelli.
Okkur þótti tilvalið að taka viðtal við nýja þjálfarann svo allir Ægismenn gætu kynnst honum nánar.
Nafn og aldur:
Alfreð Elías Jóhannsson, Fæddur 1976.
Hvaðan er maðurinn:
Fæddur og uppalinn í Grindavík og á ættir mínar að rekja til Vestmannaeyja og Hofsóss, ekki amalegt það en í dag bý ég í Árbænum.
Knattspyrnuferillinn:
Ég hef spilað í öllum deildum á Íslandi, með sjö liðum en þau eru: GG í 3. deild, Sindri og Bí/Bolungarvík í 2. deild, Njarðvík og Víkingur Ólafsvík í 1. deild, Stjarnan og Grindavík í úrvalsdeild. Samtals gera þetta 139 leiki í Íslandsmóti og 26 mörk.
Þjálfaraferillinn:
Ég byrjaði 2006 að þjálfa GG í Grindavík en til gamans má geta að Ægir var með okkur í riðli og þeir leikir fóru 0-0 og 3-0 fyrir GG. GG endaði í 3. sæti með 27 stig en Ægir í 7. sæti með 12 stig.
Í fyrra var ég ráðinn vestur á firði til að þjálfa sameiginlegt lið Bí/Bolungarvíkur í 2. deild. Liðið endaði í 2. sæti með 47 stig og fór upp í fyrstu deild þar sem þeir munu spila í ár eftir langa bið undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Ég er með UEFA B gráðu í þjálfun og 5. stig að auki.
Uppáhalds lið í ensku:
Það er auðvitað besta liðið í Liverpoolborg – EVERTON.
Hvernig líst þér á Þorlákshöfn og Ægi:
Mér líst rosalega vel á það sem ég hef séð af Þorlákshöfn. Aðstaðan er til fyrirmyndar og efnilegir strákar. Þetta verður spennandi sumar fyrir Ægi í fótboltanum og ég hlakka til að sjá sem flesta á vellinum í sumar.
Við þökkum Alfreð kærlega fyrir viðtalið og óskum honum að sjálfsögðu góðs gengis með liðið okkar í sumar.
Áfram Ægir
Image URL: /upload/images/Ýmislegt/alfreð þjálfari_thumb.JPG