N1 – mótið 2010

5. júl 2010

| umsjon

N1 – mótið 2010

Strákarnir í Ægir og Hamar stormuðu norður síðastliðinn miðvikudagsmorgun, einhverjir voru þó farnir áður. Það voru 18 strákar frá Ægi og 12 frá Hamar sem skipuðu okkar fjögur lið. Mótið var mjög skemmtilegt og oftar ekki boðið uppá háspennu leiki þar sem okkar menn stigu fram á völlinn. Ferðin var mjög skemmtileg og strákarnir voru til fyrirmyndar jafnt innan vallar sem utan. Benni og Bjarni stóðu sig frábærlega sem farastjórar og leystu öll verkefni milli himins og jarðar í þessari ferð. Mikið af foreldrum komu með og fylgdust grannt með gangi mála og skemmtu sér prýðilega. Mikið af myndum var tekið og einnig voru teknir upp leikir á hd-video vél Bjarna Vals. Þessar myndir og video er hægt að fá á geisladisk, foreldrar og aðrir áhugasamir geta haft samband við Sveinbjörn til að nálgast þessar myndir. Diskurinn kostar 2000kr.- og fara þeir peningar í að borga fyrir bolina sem strákarnir fengu fyrir mótið. Hægt er að skoða úrslit allra leikja á heimasíðu N1 – mótsins 2010.

Takk fyrir góða ferð strákar og foreldrar.
Mbkv.
Sveinbjörn s: 899-0452


Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur karla 2010/IMG_9981_thumb.JPG