Smábæjarleikar á Blönduósi 18. – 20. júní

17. jún 2010

| umsjon

Smábæjarleikar á Blönduósi 18. – 20. júní

Góða skemmtun..
Frá Ægi fara lið í 7. flokki, 6. flokki og 5. flokki kvenna.

Dagskrá og aðrar upplýsingar

 

Matur er framreiddur í Félagsheimilinu sem er staðsett við hliðina á aðalvellinum en gengið er inn framan.

 

Föstudagur 18. júní

 

18:00 – 22:00             Móttaka keppnisliða í Félagsheimilinu sem er við Húnabraut beint

á móti Arion banka, gengið inn að framan.

 

Laugardagur 19. júní

 

07:00-09:00                Móttaka keppnisliða í Félagsheimilinu sem er við Húnabraut beint

á móti Arion banka, gengið inn að framan.

07:00-09:30                Morgunverður

08:20                          Setning mótsins á íþróttavellinum

08:30-18:30                Knattspyrnuleikir skv. leikjatöflu

11:30-14:00                Hádegismatur (vinsamlegast sýnið þolinmæði ef myndast biðröð)

 

17:30-20:00                Kvöldverður (vinsamlegast sýnið þolinmæði ef myndast biðröð)

20:00                          Kvöldskemmtun á íþróttavellinum. Hæfileikakeppni félagsliða.

Hvert félagslið tilnefnir einn aðila (þjálfara, liðstjóra eða foreldra) til að vera fulltrúi síns liðs í kvöldskemmtun.       

22:00                          Fararstjórafundur í Félagsheimilinu (Kaffi, te og vöfflur)

 

Sunnudagur 20. júní

 

07:00-09:30                Morgunverður

08:30-16:00                Knattspyrnuleikir skv. leikjatöflu

12:30-13:30                Vallarnesti

16:00-17:00                Verðlaunaafhending – Áætluð mótslok

 

Vallarnesti á sunnudag

Þjálfarar/liðstjórar eru beðnir um að sækja vallarnestið fyrir sitt félag milli 12:30-13:30 (bakhlið félagsheimilisins).

 

 

Verðlaunaafhending – Grill –  Mótslok

Eftir að síðasta leik líkur um klukkan 15:30 viljum við biðja öll liðin um að koma sér fyrir í áhorfendabrekkunni við aðalvöllinn. Flokkarnir verða kallaðir upp hver á eftir öðrum.  Að lokinn verðlaunaafhendingu verður grillveisla. J

Við viljum biðja liðin um að vera tilbúin þegar verðlaunaafhendingin hefst, svo allt gangi hratt og örugglega fyrir sig. Vonandi verður þetta allt til þess að allir geti farið glaðir heim eftir skemmtilegt fótboltamót.


Image URL: /aegirfc/upload/images/6.flokkur 2010/IMG_8158_thumb.JPG