Í gærkvöldi tóku Ægismenn á móti Vængjum Júpíters. Þetta lið er á sínu fyrsta ári í deildinni, þeir hafa hinsvegar tekið þátt í utandeildakeppninni síðustu ár með góðum árangri. Leikmenn liðsins koma flestir upphaflega úr herbúðum Fjölnis.
Ægismenn voru mun sterkari í fyrrihálfleik og áttu svo sannarlega að vera búnir að setja nokkur mörk á gestina en í hálfleik var staðan aðeins 1-0. Í seinni hálfleik fengu gestirnir síðan vítaspyrnu sem breytti gangi mála töluvert tímabundið í leiknum. Því um miðjan seinni hálfleikinn voru gestirnir komnir með 2-1 forustu. EN heimamenn náðu að jafna leikinn og tryggja sér sigur með mark á 88mín. Það má segja að þetta hafi verið krísuvíkurleiðin…Þetta hafðist en mátti vart tæpara standa. Það sýndi sig að það er dýrt í fótbolta að klára ekki færin sín…
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla 2010/IMG_2534_thumb.JPG