Oldboys með heimasigur í gær…..

11. sep 2009

| umsjon

Oldboys með heimasigur í gær…..

Hið firnasterka ,,oldboys“ lið Ægis tók á móti KÍBV2 i gærkvöldi. Leikurinn fór fram á gervigrasinu í flóðjósum. Leikmenn Ægis komust í 4 – 0 en undir lok leiksins varð vart við smá gestrisni og gestirnir löguðu stöðuna með tveimur mörkum í lokin. Markús skoraði annan leikinn í röð og nú af um 30m færi, Júlli skoraði eitt stykki…..Alexander gerði einnig eitt mark og svo var varnarjaxlinn hann Garðar sem gerði eitt stórglæsilegt mark.
Næsti leikur er á útivelli gegn firnasterku liði Fylkismanna….

Áfram Ægir….


Image URL: /aegirfc/upload/images/Oldboys/markús_thumb.jpg