Ægismenn í mfl.karla tóku á móti Völsungum frá Húsavík á laugardaginn síðastliðinn. Leikur liðanna var fyrri leikur í rimmu þeirra í 8 liða úrslitum 3. deildarkeppninnar. Gestirnir frá Húsavík standa ótvírætt betur að vígi fyrir seinni leikinn, því þeir fóru með sigur af hólmi 3 – 1 hér á Þorlákshafnarvelli. Seinni leikur liðanna fer fram nk. þriðjudag á Húsavík og nú er bara að krossleggja fingur og tær……
Áfram Ægir…..
Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/sitelogo_thumb.gif