5. flokkur karla með tap og sigur…

24. ágú 2009

| umsjon

5. flokkur karla með tap og sigur…

Síðastliðin föstudag fórum við með 5. flokk karla og kvenna á Ísafjörð. Þar höfðu BÍ sigur 4 – 3 í A-liðum og 3 – 2 í B -liðum. Stelpunar náðu hinsvegar að tryggja sér jafntefli eftir að hafa verið 2 – 0 undir, flottur leikur hjá stelpunum sem tryggðu okkur eina stig dagsins í blíðskaparveðri á Ísafirði.

Í dag tóku svo strákarnir á móti Grindavík. Þar hafði A – liðið sigur 8 – 0 og tryggði sig inn í úrslitin og B liðið vann sinn leik 12 – 1 og geta með sigri tryggt sig í úrslitakeppnina í sínum síðasta leik.

Þess má geta að liðin hafa einungis tapað einum leik hvort í Ísl.mótinu sem er frábær frammistaða hjá strákunum.

Áfram Ægir…


Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg