Meistaraflokkur með jafntefli…

13. ágú 2009

| umsjon

Meistaraflokkur með jafntefli…

Á þriðjudagskvöldið fóru Ægismenn og heimsóttu lið Ýmismanna í Fagralundinn í Kópavogi. Ægismenn hafa ekki verið að hala inn stig á móti Ýmismönnum í sumar, en í þetta skiptið tókst að ná í einn punkt. Lokatölur 1 – 1. Næsti leikur Ægismanna er útileikur gegn Létti á ÍR vellinum nk. laugardag og hefst leikurinn kl. 14:00.

Áfram Ægir…


Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg