Loksins, loksins fórum við á nýja völlinn okkar og tókum á móti Ýmismönnum ( HK ). Í blíðskaparveðri við toppaðstæður síðastliðið miðvikudagskvöld. Leikurinn var hin besta skemmtun og heimamenn yfir í hálfleik 1 – 0, í byrjun seinni hálfleiks kemur svo afar umdeild atvik… Ýmismenn fá vítaspyrnu og Jón Reynir fær reisupassann, það var mál manna á vellinum að þarna hafi annars ágætur dómari leiksins gert afdrifarík mistök…. Gummi varði vítið og við fram og skoruðum 2 – 0 mikið drama í gangi. EN liðsmunurinn fór að segja til sín og lokatölur urðu 2 – 4 fyrir gestina sem skoruðu tvö markanna í uppbótartíma.
Áfram Ægir….
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/Teygjur_thumb.JPG