Á mánudaginn nk. 15. júní byrjar knattspyrnuskóli okkar Ægismanna fyrir iðkendur úr 7. og 8. flokki. Skólinn er að sjálfsögðu fyrir stráka og stelpur. Umsjónarmaður skólans verður Garðar, en hann er öllum hnútum kunnugur og þekkir þessa krakka vel. Við viljum hvetja sem flesta til að koma og vera með í skemmtilegu sumarstarfi knattspyrnuskólans. Skráning í skólann er hjá Garðari s: 846-1330
Knattspyrnuskólinn verður á gervigrasinu og hefst kl. 10:00 á morgnana.
Sjáumst hress og kát.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg