Sameiginlegt lið hjá okkur í 3. flokki fór síðastliðinn þriðjudag og spilaði Breiðablik í Kópavognum. Strákarnir í 3. flokki hafa verið að gera mjög góða hluti, unnu meðal annars lið Selfoss/KFR í bikarkeppninni 2 -1 á heimavelli.
Leikurinn í Kópavoginum var hörkuleikur, þegar skammt var eftir af leiknum höfðu okkar menn forustu 2-1 en undir blálokin náðu heimamenn í Breiðablik að jafna leikinn. Lokatölur 2 – 2.
Áfram Hamar/Ægir
3. flokkur Hamar/Ægir
11. jún 2009
| umsjon