Meistaraflokkurinn lék við Hvíta Riddarann að varmárvelli í Mosfellsbæ. Strákarnir byrjuðu leikinn vel og léku fínan leik í fyrri hálfleik. Við vorum komnir í 2-0 yfir þegar vendipunktur verður í leiknum, við missum mann af velli með rautt spjald. Strákarnir fengu góð tækifæri til að skora 3 markið í stöðunni 2-0 fyrir okkur. Þegar líða fór á seinnihálfleikinn fór það að telja að vera einum færri. Svo á 10 mín. kafla opnuðust flóðgáttir og heimamenn gerðu 3 mörk á þeim tíma og þar við sat. Niðurstaðan 2-3 tap, vægast sagt mikil vonbrigði eftir það hvernig leikurinn spilaðist.
Áfram Ægir..
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/Teygjur_thumb.JPG