Síðastliðinn sunnudag fórum við í Víkina og spiluðum í Ísl. móti.
Futsal er fótbolti með þyngri bolta en gengur og gerist, það er
spurning hvort að þetta sé komið til að vera sem aðal innimót KSÍ árlega.
Við spiluðum 3 leiki, gerðum jafntefli við Snæfellsnes, töpuðum 0-1 fyrir Breiðablik
og 1-3 fyrir Víkingum úr Rvk. Við fórum bara með stráka af eldra ári, strákarnir
stóðu sig ágætlega og áttu skemmtilega dagstund saman.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/ÆGIR/DSC00713_thumb.JPG