Það hefur verið ákveðið að frítt verði að æfa hjá Knattspyrnufélaginu Ægi eftir áramót. Eftir sem áður reynum við að halda uppi miklu og góðu þjónustu magni. Það er mikið ánægjuefni að geta boðið þetta áfram. Samt sem áður hefur fjöldi þjálfara verið aukinn og mikið kapp verður lagt á það allir okkar iðkendur fái sín notið við æfingar og leik undir stjórn þjálfara okkar.
Þær aðstæður sem við getum boðið okkar börnum uppá hér í okkar bæjarfélagi eru til mikillar fyrirmyndar og það er okkar ætlun að reyna að nýta þær góðu aðstæður sem við höfum hér til að búa til knattspyrnufólk framtíðarinnar. Jafnframt því er það nauðsynlegt að allir fái verkefni við hæfi og séu virkir í þeim verkefnum burt séð frá því hvort þar eru ferðinni einhverjir snillingar eður ei…. Því við höfum fullt af snillingum, hvern og einn á sínu sviði.
Mbkv.
Sveinbjörn
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur kvenna/o2 4.fl.kvenna 2008_thumb.jpg