Heimsókn 5. flokks til Framara

2. nóv 2008

| umsjon

Heimsókn 5. flokks til Framara

Við fórum síðastliðin föstudag 31. október og heimsóttum Framara. Við spiluðum við þá í Egilshöllinni frá kl. 17:00 – 18:30. Við vorum með 4 lið líkt og þeir. Við fórum með 31 leikmann sem er frábært, Ægir og Hamar saman. Vonandi á þeim eftir að fjölga aðeins hér hjá okkur. Framarar munu svo koma á næstunni í heimsókn til okkar. Þar sem þeir ætla að gista, þá munu við spila og jafnvel æfa eitthvað saman og slá á létta strengi með strákunum. Það er einnig framundan að fara og spila við Fjölnismenn í 5. flokki.

Mbkv.
Sveinbjörn


Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur karla/5.karla á leið í Hveró_thumb.JPG