Næstkomandi föstudag 31. október förum við í heimsókn til Framara. Þeir taka á móti okkur í Egilshöll. Við förum með um 20 stráka frá Ægi og 12 – 15 úr Hamri. Þó að strákarnir æfi í sitthvoru lagi yfir vetrarmánuðina þá hefur verið ákveðið að þeir spili saman næsta sumar.
Það er ætlunin að fara með þá sameiginlega á sem flest mót yfir sumarið. Það stefnir í að við verðum 35 – 40 stráka í flokknum. Sem er náttúrlega frábært og á eftir að skila sér enn betur í framtíðinni fyrir alla.
Brottför er kl. 15:45 frá Íþróttamiðstöðinni. Við byrjum að spila kl. 17:00 og spilum til kl. 18:30.
Mbkv. Sveinbjörn
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. karla gegn Víði/DSC_0340_thumb.JPG