Enn einn stórsigur hjá 4. flokki karla

15. ágú 2008

| umsjon

Enn einn stórsigur hjá 4. flokki karla

Strákarnir í 4. flokki karla léku í dag gegn Snæfellsnesi og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli.  Liðið lék á móti vindi í fyrri hálfleik en réð samt gangi leiksins.  Allt útlit var fyrir markasúpu því Pálmi opnaði markareikninginn á fyrstu mínútu.  En ekki voru skoruð fleiri mörk fram að hálfleik og staðan því 1:0 þegar síðari hálfleikur hófst.  Eftir leikhlé tóku strákarnir öll völd á leiknum og voru oft að spila flottan fótbolta.  Með mörkum frá Degi (2), Pálma, Tómasi og Friðrik komumst við í 6:0 og enn einn stórsigurinn staðreynd.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG