Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn KFS og fór leikurinn fram í Vestmannaeyjum. Ægismenn voru ekki að leika vel í fyrri hálfleik og að sögn Sveinbjörns þjálfara var alltof mikið af sendingarfeilum innan liðsins. Heimamenn náðu að skora tvívegis og staðan því 2:0 þegar síðari hálfleikur hófst. KFS komust í 3:0 fljótlega eftir hálfleik og útlítið því ekki bjart hjá okkar mönnum en strákarnir brögguðust þegar leið á leikinn og með mörkum frá Danislav og Sæla var staðan heldur betri. Markið hjá Sæla var einkar fallegt, stöngin inn uppvið markvinkilinn. En lukkan var ekki yfir liðinu í kvöld því Jón og Albert fengu báðir að líta rauða spjaldið og við því 9 á móti 11. Liðið sótti samt af miklum krafti og með mikilli baráttu náðum við að jafna leikinn þegar Danislav skoraði sitt annað mark í uppbótartíma.
Næsti leikur Ægis er gegn toppliði Berserkja og fer hann fram á Víkingsvelli næstkomandi laugardag og hefst kl. 14:00.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG