Baráttusigur hjá meistaraflokk gegn KV

8. ágú 2008

| umsjon

Baráttusigur hjá meistaraflokk gegn KV

Meistaraflokkur karla lék gegn KV í kvöld og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli.  Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru eins og best verður á kosið, góður völlur og gott veður.
Gestirnir byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirburði á flestum sviðum.  Þeir uppskáru mark á 24. mínútu eftir að Ægir hafði náð að verjast vel.  Staðan í hálfleik var því 0:1.
Það var allt annað Ægislið sem kom inná í síðarihálfleik, mikið meiri barátta enda fór liðið að skapa sér færi.  Eftir gott kanntspil náði Danislav að jafna leikinn á 57. mínútu og það var síðan Sigurjón sem skoraði sigurmarkið á 71. mínútu með skalla.  Bæði lið fengu ágætis færi það sem eftir lifði leiks en hvorugt lið náði að nýta þau.  En góður baráttusigur hjá strákunum.

Næsti leikur meistaraflokks verður gegn KFS útí Vestmannaeyjum næsta þriðjudag.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG