5. flokkur kvenna heldur áfram að spila flottan fótbolta en í dag héldu þær í Safamýrina og léku gegn Fram. Í fyrri hálfleik sóttu Ægisstúlkur af miklum kraftir en náðu aðeins að skora eitt mark gegn einu marki heimamanna. Í seinni hálfleik náðu svo okkar stúlkur að nýta færin og lauk leiknum með sigri Ægis 2:6.
Það voru þær Eva Lind, Bergrún og Sunna Ýr sem skoruðu mörkin en þær voru allar með tvö mörk.
Hér til hliðar má sjá stelpurnar í leik gegn ÍA fyrr í sumar.
Vel gert stelpur.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. kvenna gegn ÍA/Picture 001_thumb.jpg