Rey Cup fer fram þessa dagana í Laugardal. Það er stórmót sem Þróttur heldur árlega og er fyrir 3. og 4. flokk karla og kvenna.
Að þessu sinni sendir Ægir 3. og 4. flokk karla saman í keppni 3. flokks. Það verður nóg að gera hjá strákunum, þeir spila 5-6 leiki auk þess að sækja ýmsa afþreyingu í boði mótsins.