Vonbrigði hjá meistaraflokk á Hvolsvelli

30. júl 2008

| umsjon

Vonbrigði hjá meistaraflokk á Hvolsvelli

Meistaraflokkur karla lék sinn fyrsta leik í 3. umferð Íslandsmótsins á Hvolsvelli í gærkvöldi.  Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við leikmenn og alla forsendur til að spila góðan fótbolta.
Leikurinn fór sannarlega vel af stað því Junior skoraði laglegt mark eftir góðan samleik okkar manna.  En eftir markið hættu Ægismenn að leika eins og lagt hafði verið upp og KFR komust meira inn í leikinn.  Eftir því sem leið á hálfleikinn náðu heimamenn betri og betri tökum á leiknum og uppskáru tvö mörk fyrir hálfleik.
Eftir þrumuræðu frá Sveinbirni í hálfleik hresstust okkar menn heldur og voru sterkari aðilinn framan af síðari hálfleik.  Nokkur færi litu dagsins ljós en það var síðan Sæli sem jafnaði leikinn um miðjan hálfleikinn eftir að hann braust í gegn af miklu harðfylgi.  Eftir markið var nokkuð jafnræði með liðunum en heimamenn spiluðu þó af skynsemi og var leikgleðin í fyrirrúmi hjá þeim.  Þeir náðu síðan að skora sigurmarkið stuttu fyrir leikslok og niðurstaðan því tap 3:2 gegn KFR.

Næsti leikur meistaraflokks er föstudaginn 8. ágúst gegn KV á Þorlákshafnarvelli.  Að venju hefjast leikir meistaraflokks í ágúst kl. 19:00.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG