Í dag fengu iðkendur yngri flokka Ægis heim með sér Vinamiðann. Með miðanum gefst krökkunum færi á að bjóða einhverjum vini sínum að æfa frítt hjá Ægi næstu 3 vikur (12. – 30. nóvember). Með þessu viljum við fjölga iðkendum og gera starfið enn skemmtilegra.
Við viljum biðja foreldra yngstu iðkenda að aðstoða krakkana með Vinamiðann svo verkefnið takist sem best.