Ægismaðurinn Viktor Karl Halldórsson var valinn til að taka þátt í hæfileikamótun KSÍ sem fram fór síðustu helgi og er ætlað stelpum og strákum á aldrinum 13-15 ára.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að;
Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
Koma á móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
Koma á móts leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.
Viktor Karl er vel að þessu kominn og gaman verður að fylgjast með honum í framtíðinni.

