Víkingur Ó. – Ægir mfl. karla

14. feb 2010

| umsjon

Víkingur Ó. – Ægir mfl. karla

Nú í dag lékum við æfingaleik við Víking frá Ólafsvík í Akraneshöllinni. Leikar fóru þannig að Víkingur fór með sigur af hólmi 4 – 1. Mark okkar manna gerði Ársæll. Þrátt fyrir 3 marka tap þá sýndu okkar menn oft á tíðum ágætisleik, 2 mörk þeirra Ólsara voru á gráu svæði með rangstöðu. Það er hinsvegar full mikið af því góða að fá á sig 4 mörk. En leikurinn í heild sinni var betri en síðasti leikur, nú sáust góðir spilakaflar oftar og lengur en áður.
Einn ungur piltur kom við sögu í sínum fyrsta Mfl. leik það Svavar Berg Jóhannsson og átti hann prýðilega innkomu í seinni hálfleik.

Áfram Ægir…


Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg