Viðtal við nýja þjálfara meistaraflokks

24. mar 2011

| umsjon

Viðtal við nýja þjálfara meistaraflokks

Ný þjálfari tók við meistaraflokk karla fyrir þetta tímabil.  Nú styttist í að keppnistímabilið hefjist og liðið þegar byrjað að spila í Lengjubikarnum.  Næsti leikur er einmitt á laugardaginn gegn Sindra kl. 14:00 á Selfossvelli.
Okkur þótti tilvalið að taka viðtal við nýja þjálfarann svo allir Ægismenn gætu kynnst honum nánar.

Nafn og aldur:
Alfreð Elías Jóhannsson, Fæddur 1976.

Hvaðan er maðurinn: 
Fæddur og uppalinn í Grindavík og á ættir mínar að rekja til  Vestmannaeyja og Hofsóss, ekki amalegt það en í dag bý ég í Árbænum.

Knattspyrnuferillinn: 
Ég hef spilað í öllum deildum á Íslandi, með sjö liðum en þau eru: GG í 3. deild, Sindri og Bí/Bolungarvík í 2. deild, Njarðvík og Víkingur Ólafsvík í 1. deild, Stjarnan og Grindavík í  úrvalsdeild. Samtals gera þetta 139 leiki í Íslandsmóti og 26 mörk.

Þjálfaraferillinn: 
Ég byrjaði 2006 að þjálfa GG í Grindavík en til gamans má geta að Ægir var með okkur í riðli og þeir leikir fóru 0-0 og 3-0 fyrir GG. GG endaði í 3. sæti með 27 stig en Ægir í 7. sæti  með 12 stig.
 Í fyrra var ég ráðinn vestur á firði til að þjálfa sameiginlegt lið Bí/Bolungarvíkur í 2. deild.  Liðið endaði í 2. sæti með 47 stig og fór upp í fyrstu deild þar sem þeir munu spila í ár eftir langa bið undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar.  Ég er með UEFA B gráðu í þjálfun og 5. stig að auki.

Uppáhalds lið í ensku:
Það er auðvitað besta liðið í Liverpoolborg – EVERTON.

Hvernig líst þér á Þorlákshöfn og Ægi: 
Mér líst rosalega vel á það sem ég hef séð af Þorlákshöfn. Aðstaðan er til fyrirmyndar og efnilegir strákar.  Þetta verður spennandi sumar fyrir Ægi í fótboltanum og ég hlakka til að sjá sem flesta á vellinum í sumar.

Við þökkum Alfreð kærlega fyrir viðtalið og óskum honum að sjálfsögðu góðs gengis með liðið okkar í sumar.

                                                            Áfram Ægir




Image URL: /upload/images/Ýmislegt/alfreð þjálfari_thumb.JPG