Ægir hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en Harley Bryn Willard hefur gengið til liðs við félagið eftir að hafa æft með liðinu undanfarnar vikur.
Harley er 28 ára gamall Englendingur, alinn upp í London, og á að baki afar áhugaverðan feril. Hann gekk aðeins níu ára gamall til liðs við akademíu Arsenal áður en hann færði sig yfir til Southampton fimmtán ára gamall. Sextán ára lék hann sinn fyrsta leik með U23-liði Southampton og var þá talinn meðal efnilegri leikmanna félagsins. Hann á jafnframt landsleiki með skoskum unglingalandsliðum á aldrinum U16–U19.
Á meistaraflokksaldri lék Harley með nokkrum enskum utandeildarliðum áður en hann hélt utan, fyrst til Svíþjóðar þar sem hann lék með Hässleholms IF og síðar til Kambódíu með Svay Rieng FC.
Árið 2019 kom hann til Íslands og lék með Víkingi Ólafsvík í þrjú sumur. Þar skoraði hann 36 mörk í 68 leikjum í deild og bikar og var meðal annars valinn í lið ársins í Lengjudeildinni. Í kjölfarið gekk hann til liðs við Þór Akureyri árið 2022 og skoraði 15 mörk í 24 leikjum. Þá lék hann tvö tímabil með KA Akureyri í Bestu deildinni áður en hann spilaði með Selfoss í Lengjudeildinni sumarið 2025.
Harley getur bæði leikið á kantinum og sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hann er þekktur fyrir leikni, góðan leikskilning og öflugan vinstri fót og kemur inn í Ægishópinn með mikla reynslu af íslenskum fótbolta á hæsta stigi.
Ægir bindur miklar vonir við framlag hans á komandi tímabili og býður Harley Bryn Willard hjartanlega velkominn til Þorlákshafnar.
