Við kynnum Benedikt Þór Viðarsson

9. mar 2026

| sös

Við kynnum Benedikt Þór Viðarsson

Ægir hefur fengið til liðs við sig varnarmanninn Benedikt Þór Viðarsson sem mun leika með liðinu í Lengjudeild karla í sumar.

Benedikt, eða Benni eins og hann er kallaður er 19 ára gamall og hefur æft með liðinu undanfarnar vikur. Hann hefur þegar tekið þátt í þremur leikjum með Ægi í Lengjubikarnum og hefur nú formlega gengið til liðs við félagið.

Benni er uppalinn í yngri flokkum Gróttu en hefur einnig leikið með yngri flokkum KR og Vals. Í meistaraflokki hefur hann áður spilað með KH og Gróttu en mun nú klæðast gulu og svörtu treyjunni hjá Ægi.

Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum en hefur aðallega leikið í varnarlínunni.

Benni er orkumikill og metnaðarfullur leikmaður með mikinn vilja til að bæta sig og hann á sannarlega framtíðina fyrir sér

Við bjóðum Benedikt Þór hjartanlega velkominn í Ægi og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu og svörtu í sumar.