Alfredo Ivan Arguello Sanabria hefur gengið til liðs við Ægir frá Selfossi. Alfredo er 26 ára gamall, fæddur í Paragvæ, og kom til Íslands árið 2012 þar sem hann settist að á Selfossi.
Alfredo hóf knattspyrnuferil sinn hér á landi í yngri flokkum Selfoss, gekk síðar til liðs við Fylki og lék með 2. flokki félagsins á árunum 2017 og 2018. Hann á að baki meistaraflokksleiki með Elliða, Árborg, Hamar, Stokkseyri og Árbæ, áður en hann sneri aftur til Selfoss árið 2024. Þar lék hann í 2. deild og síðan í Lengjudeildinni tímabilið 2025.
Alfredo getur leyst bæði kantstöður og bakvarðarhlutverk. Hann er hraður, áræðinn og teknískur leikmaður með mikla reynslu. Hann á alls 277 KSÍ-leiki og 45 mörk, þar af 151 meistaraflokksleikur og 18 mörk. Reynsla hans úr Lengjudeild styrkir hóp Ægis og styður við verkefnið fram undan.
Ægir býður Alfredo hjartanlega velkominn og hlakkar til að sjá hann í gulu og svörtu á komandi tímabili.
