Hið árlega sumarkaffi Ægis var haldið í Ráðhúsinu síðastliðinn fimmtudag. Unglingaráð skipulagði uppákomuna en auk glæsilegra veitinga voru ýmis skemmtiatriði í boði fyrir gesti.
Kaffið var vel sótt að þessu sinni. Atriði frá Tónar og trix, Tónlistarskólanum
og trampolín dans slógu í gegn enda skemmtu kaffigestir sér konunglega. Hér eru nokkrar myndir frá þessum skemmtilega degi.
